Stjarnan í titlinum er rassgat.

Hinn afkastamikli en í senn síumdeildi MCU-heimur tekur ákveðnum stakkaskiptum með Thunderbolts*, ef svo má segja. Hér er tráma, þunglyndi og geðrænir kvillar í gígantískum fókus með umræðuverðum hætti.

Sigga Clausen er aftur mætt í stúdíóið til að grandskoða MCU-eintakið að sinni með okkur Kjartani og stærra mengi hasarblaðaheimsins sem umræðir – og hvert hann stefnir. Hafa dómarnir kannski rétt fyrir sér, er Thunderbolts* besta Marvel-myndin síðan ____* ?

Sjáum hvað setur. Skoðanirnar ku vera ólíkari en fyrst mætti halda.

Og jú, þessi stjarna í titlinum er 1000% rædd í þaula…

Flokkar:

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading