‘Fyrsta Marvel-fjölskyldan’ svonefnda er aftur komin ‘heim’ og hefur þar með fengið glænýja endurræsingu – nema nú í MCU-heiminum. Eftir raðir af merkum feilsporum að koma Fantastic Four hetjunum á hvíta tjaldið með sterkum árangri er upplagt að kanna hvort útkoman hérna séu merki um gríðarleg framför eða hvort hvíli hreinlega bara einhver bíóbölvun á þessu merki.
Sigga Clausen er sest niður með okkur lúðunum til að rýna í Hin fjögur fræknu og meta hvort um ræðir annars vegar bjarta von um framtíð Marvel-myndanna og hins vegar hvort eðahvar spennan fyrir Avengers: Doomsday liggur. Umræður um foreldrahlutverk og fæðingar gætu einnig verið óhjákvæmilegar, ásamt samanburði við Superman….
Varað verður við þyngri spillum, á circa hálftíma-markinu.







































































































































































































