Nýjasta myrka furðuverkið frá meistaranum Robert Eggers hefur svo sannarlega verið á vörum margra nú í byrjun nýja ársins. Á meðal þeirra sem sitja ekki á skoðunum sínum erum við Bíófíklarnir sem nú taka á móti Krumma Laxdal, kennara, listamann og sérfræðing í vampírufræðum…
Margir vilja meira að umrædd kvikmynd sé með betri aðlögunum á ‘Drakúla’-sögunni þó meginstraumurinn hefur gjarnan mikið klórað sér í hausnum yfir velgengninni.
En hvernig stenst Nosferatu samanburð við fyrri verk leikstjórans? Er myndin meira í stílnum en sögunni? Gengur hún upp sem hrollvekja eða mögulega eitthvað allt annað eða jafnvel miklu meira en það?
Opnum líkkisturnar, skellum okkur í períóduvæna búninga og könnum málið.



Leave a Reply