Spennuþriller
-
(ATH. Þessi umfjöllun inniheldur létta spoilera. Ekkert grafalvarlegt en gæti eyðilagt hina „hreinu“ upplifun) A Perfect Getaway lítur út í fyrstu fyrir að vera klisjukenndur spennuþriller sem gerir lítið annað en að kynna persónur til leiks áður en stanslaus eltingarleikur fer í gang. Kom síðar í ljós að myndin er bara nákvæmlega þannig en samt…
-
Mér finnst samt eins og Shannon eigi beittari mynd skilið. Hún heldur dampi án þess að vera sérstaklega grípandi. Fínt innlit samt.
-
Lofar góðu í byrjun en þegar aukaverkanir byrja að kikka inn, þá fer fílingurinn hratt versnandi.
-
Fínasta mynd og örugglega prýðileg á vídeókvöldi ef ekki er búist við of miklu.
-
Vinterberg kemur glæsilega í veg fyrir of niðurdrepandi atmó og skreytir öllu heldur týpískan hversdagsleika með ákveðnum kulda og óþægindum.
-
Myndin er sem betur fer laus við predikun, en það að hún neiti að taka afstöðu án þess að víkka sjóndeildarhringinn vinnur meira gegn henni frekar en með henni.
-
Cruise skal framvegis halda sig við það hlaupa frekar en að pósa og ganga með stæl.
-
Rob Cohen á að vera löngu hættur að búa til bíómyndir. Það er lítið gagn í honum og hefur nánast aldrei verið,
-
Köld, dökk, brútal, beinskeytt og vel skrifuð í samræðum en atburðarásin er hálfbökuð.
-
Argo reynir að blanda saman pólitískt drama við „crowd pleaser“ njósnaþriller með húmor en stendur sig mun betur sem þetta síðarnefnda.
-
Vinsamlegast látið þetta hús eiga sig. Enginn er heima.
-
Svöl, stílísk, frískandi, sígild. Allt sem klassískur og nútímalegur Bond ætti að vera.
-
Casino Royale er eins raunsæ og hægt er að gera kvikmynd um njósnara hennar hátignar. Engin heimsyfirráð, bara hryðjuverk.
-
Það er broddur í þessari bílferð og aðalmönnunum, en áfangastaðurinn er heldur dauður.
-
Mæli miklu frekar með THE Savages frá 2007 (m. Philip Seymour Hoffman). Allt öðruvísi mynd en engu að síður betri nýting á tíma.
-
Looper er nokkrum skrefum frá því að vera meistaraverk í sínum geira en hún nær ekki alveg að komast á áfangastað sinn án þess að misstíga sig pínu.
-
Grjótharður stemmari.
-
Myndina skortir púlsinn sem hinar höfðu. Það er stærsti og alvarlegasti gallinn.
-
Ekki kúl, Reynir. Ekki kúl.
-
Biblískum hvelli er lofað. Heildin haltrar bara í staðinn.
-
Á mörgum sviðum er þessi mynd betri en forveri sinn en á öðrum ekki.
-
Fyrirtaks Batman-mynd fyrir fullorðna en fyrst og fremst brilliant glæpamynd sem heldur mögnuðu flugi í tvo og hálfan tíma.




























































































































































































































