Category: Íslensk mynd
-
Köld. Óeftirminnileg. Ormur má líka fokka sér.
-
Þessi mynd bæði gengur upp og missir marks, og persónulega finnst mér hún meira forvitnileg í framleiðsluskilningi heldur en grípandi.
-
Varúð; Ókurteis samantekt.
-
Þetta er unglingamynd (eða mynd um unglinga…) sem fattar unglinga. Og nei, það er ekki sjálfsagður hlutur. Það er dýrmætur faktor.
-
Borgríki er ekki að gera margt sem við höfum ekki séð áður og betur gert, en hún stendur sig engu að síður vel í því sem hún gerir rétt.
-
Þeir sem tóku því persónulega hvað Marvel-myndin Thor hrærði mikið í norrænu goðafræðinni geta brosað breitt þegar þeir sjá hvað við íslendingar erum trúir okkar eigin rótum (já, þrátt fyrir talandi hamarinn).
-
Er Tommy Wiseau með einhvern kvikmyndaskóla á klakanum sem ég er ekki var við?
-
Börn dýrka Sveppamyndirnar vegna þess að þær eru fullar af hamagangi og hugmyndum sem maður sér venjulega aldrei í íslenskum myndum.
-
Dularfulla hótelherbergið er svosem ekki jafn viðburðarrík og forveri sinn, sem gæti þýtt að börn munu ekki fíla hana eins mikið, en hún reynir að minnsta kosti aðeins betur og það er eitthvað sem stórt barn eins og ég kann að meta.
-
Reyndar eru nokkur ágætlega fyndin atriði dreifð út myndina, með löngu millibili.









