Category: Grín
-
Áhorfendur eru núna gerðir að bjánunum fyrir að styrkja þennan metnaðarlausa svanasöng.
-
Stærsta grínið er sennilega sú huggandi tilhugsun að þessi bíómynd mun eldast eins og mjólkurglas undir logandi sumarsól á næstu misserum.
-
Myndin er absólút í stíl við hinar þrjár; í keyrslu, flæði, ofkeyrslu þvælunnar og þeirri óforskömmuðu löngun að bauna út eins mörgum fjölbreyttum bröndurum og hægt er að pakka undir 90 mínútur.
-
Smellur furðuvel saman, annars vegar síður sem formúlukennda ofurhetjufroðan sem hún er, hins vegar meira svo sem pjúra grínmynd sem trollar af ást.
-
Ó, mig auman.
-
Hresst, bratt og húrrandi gott sprell þar sem reyndur leikhópur sýnir sínar betri hliðar í gríninu.
-
Húmor þessara dónadana nær ítrekað að framsetja efnið með köldum raunsæisblæ á milli farsagangsins sem gerir þá heimskupör lygasjúku lúðanna þeim mun trúverðugri.
-
Horfðu frekar á Meet the Feebles. Eða aftan á Cheerios-pakka.
-
Ómögulegt að smella ekki lágmarksmeðmælum á bíómynd sem blandar saman blóðsúthellingum við stórhressandi söng Dolly Parton um vinnutímann níu til fimm.
-
Ágætis sápukúluafþreying fyrir krakkaorma.
-
Sennilega besta útgáfan af ó-alvarlegum Batman sem gerð hefur verið.
-
Að kalla Fifty Shades Darker eins konar pyntingu er of auðvelt skotmark.
-
Cohen getur betur, og hvað sem Strong fékk greitt fyrir þessa mynd, það hefur alls ekki verið nóg.
-
Hlutfallslega séð ættu fleiri brandarar að hitta í mark þegar þú ert með fjóra handritshöfunda.
-
Fjörugur en eilítið áhættulaus jólahryllingur.
-
Nýja Vacation er brött, nokkuð skemmtileg og ef einn brandari eða ýkt katastrófa hittir ekki í mark er mjög stutt í næstu aðstæður eða smekkleysu.
-
Bangsalopinn er teygður, en nóg er um prýðilega spretti.
-
Húmor, satíra, „spúf“ og vináttusaga að mínu skapi.
-
Hvíl í friði, stónerar…. Öfunda ykkur.
-
Það þýðir ekkert að reyna að meðtaka myndina sem neitt annað en frásagnardrifna sketsamynd.























