Gott í sálina
-
Project Hail Mary er svo gott sem ómótstæðileg mynd; líkleg til að hitta í mark hjá flestum í einhverjum mæli nema hugsanlega siðleysingjum og áhorfendum með ofnæmi fyrir geimmyndum.
-
Viðkunnanleg og hressileg vináttusaga, borin fram af einhverjum vestfirskum sjarma og stappfull af líflegum persónum.
-
Barbie er óskiljanlega og stjarnfræðilega brilliant bíómynd. Hún er söluvara í gervi listaverks – eða öfugt.
-
Það má gera ýmist verra við einn hálftíma en að leggjast í svona dúndurflott tóna- og tilfinningaflóð.
-
Þriðji póllinn er fínasta dæmi um hvernig hægt er að snerta á þungum málefnum á einfaldan hátt, með opnum örmum.
-
Eftir 29 ára fjarveru eru kærleiksríku lofthausarnir Bill og Ted snúnir aftur, lítið breyttir, enn í stuði og með loftgítarana á lofti.
-
Einlægnin skín öll í gegnum þessa mynd og hún er vel þess virði að faðma fast að sér.
-
Ólíklegt er að finnist þarna úti betri og hjartnæmari „auglýsing“ fyrir Google Maps.
-
Þetta er bara bölvað listaverk og ekkert annað. Gullfalleg í alla staði; heillandi, sorgleg og hressandi.
-
Hlátur og grátur með yfirgnæfandi hugmyndaflugi.
-
Ef þú elskar ekki þennan bangsa, þá vantar meiri kærleika í líf þitt.
-
One Chance væri eintómt en einlægt samansafn af ljótum tilviljunum og vondum klisjum ef sannsögulega vægið hefði ekki flutt hana svona langa leið.
-
Ómótstæðilegt ferðalag. Ljúfsárt og eftirminnilegt.
-
Bjarti andinn í myndinni er svo viðkunnanlegur að handritið dettur sjaldan niður í punkt sem ekki á heima þar.
-
Mannleg og frussufyndin. Gott meðal í sálina.
-
Easy A er, án djóks, hátt í fullkomin mynd handa gelgjum en sömuleiðis bíófíklum og þeim sem hafa gaman að snjöllum samtölum, litríkum persónum og ófyrirsjáanlegum uppákomum.
-
Kannski er þetta ykkar tebolli. Kannski ekki. Það væri samt geðbilun að taka ekki sénsinn og kanna það.























































































































































































































