Þessar svokölluðu skúrka- eða óþokkamyndir tilheyra eigin undirflokki ofurhetjumynda á þessu stigi. Nýi DC heimurinn tekur hérna stórt skref í áttina að fjölbreyttari nýjungum með bíómynd sem engan afslátt veitir í sinni ‘body horror’ nálgun. Eða svo deila Bíófíklar um þó allir séu samþykkir því hversu brakandi fersk og kærkomin Clayface er í flóru hasarblaðamynda.
Í gestasætinu er DC séníið Magnús Freyr Magnússon, mættur með ótæmandi þekkingu á rótum fígúrunnar Clayface ásamt breiðari sagnarheim, stílum og sögu Leðurblökumannsins. Drengirnir komast heldur ekki hjá því að ræða brenndu brýr svonefnda DCEU heimsins undir taumi Zacks Snyders, samanburði við aðrar illmennamyndir (t.a.m. Joker) og að sjálfsögðu hryllingssnilldirnar The Fly og The Substance, sem Clayface hefur sótt töluverðan innblástur í. Að ógleymdri Darkman, vitaskuld.
Best að hlera spjallið og sjá hvað hnoðast úr þessu öllu.






































































































































































































