Uppreisnargjarna andhetjan með lækningarmáttinn og sorakjaftinn hefur glatt pöpulinn í þrígang með geysivinsælum grínmyndum og ekki síður tilþrifunum frá Ryan Reynolds undir grímunni. Í Deadpool-myndunum er fjórði veggurinn reglulega mölvaður og endalaust gert grín að bæði Marvel-sarpinum og stærri formúlum ofurhetjumynda.
Leið þessarar fígúru að hvíta tjaldinu er jafn skemmtileg og hún var löng og á tíðum kolólögleg, þegar stærsti aflgjafinn var svonefnt ‘test reel’ lak með undraverðum hætti á internetið við ómælanlegan fögnuð netverja og áhorfenda. Á þeim tíma voru margir enn með óbragðið í munninum eftir að Deadpool karakterinn fékk hlægilega ef ekki móðgandi meðhöndlun í sorpmyndinni X-Men Origins: Wolverine.
En talandi um Wolverine! Þá hefur Jarfinn sjálfur oft verið hluti af Deadpool-seríunni, beint eða óbeint, og leiddi það á endanum til þess að þeir sameinuðust með ógleymanlegum hætti í þriðju Deadpool-myndinni.
Engu að síður vakna þarna upp ýmis konar spurningar, eins og: Eru vinsældir þessara mynda sjálfkrafa ávísun á gæði? Hversu vel eldast þær eiginlega eða eru þær jafnvel bara ákveðin búbbla síns samtíma? Og þá að sjálfsögðu líka, að öllu sögðu:
Hver er tvímælalaust besta Deadpool myndin af þessum þremur? eða ‘mesta’ Deadpool-myndin?
Bíófíklar leggja í það að svara þessum og miklu, miklu fleiri spurningum með óforskammaðri greiningu á myndasyrpunni þar sem engu er tilsparað varðandi slettur og blótsyrði. Nú er lagt í subbulegt ferðalag skoðana og sturlaðra staðreynda.
Beint í búningana með alla, smellum fáeinum [RITSKOÐAÐ]-línum í nasirnar og bölvum út í allar áttir, því nú skal hefja fjörið. Þess að auki er hlustandi jafnframt hvattur til að hlaða í eina eða tvær Chimichanga-rúllur á meðan hlustun stendur.







































































































































































































