Mín uppáhalds kvikmynd allra tíma er Jurassic Park, sem hefur á þessu yndislega móðurmáli okkar íslendinga hefur verið nefnd Júragarðurinn. Þessi mynd fangar allt sem góð stórmynd ætti að gera á sama tíma og hún hefur stórkostleg skilaboð til mannsins. Frábær samblanda af rómantík, hasar, húmor og hryllingi sem (næstum) öll fjölskyldan getur notið, annaðhvort í stofunni heima hjá sér eða á einni af þeim reglulegu bíósýningum sem bíóin halda.
En ég er nú ekki að skrifa þetta til að tala um ágæti þessarar ævintíralegu kvimyndar, eða allavega ekki bara ágæti hennar einnar. Heldur á þessi pistill að raða upp í röð, eftir mínum tilfinningum akkúrat þessa stundina, öllum myndum þessa stóra kvikmyndabálks, allt frá 1993 til ársins 2025.
7. Jurassic World: Dominion (2022)

Þessi mynd var fjárhagslega góð ákvörðun. Það virðist vera gott að setja Chris Pratt og Bryce Dallas Howard saman í kvikmynd um risaeðlur. Reyndar voru gagnrýnendur ekki á sama máli. Þegar þetta er skrifað er myndin með 28% á Rotten Tomatoes. Undirritaður verður að viðurkenna að hann er á sama máli og gagnrýnendur. Gamalgrónu persónur þeirra Sam Neill (blessuð sé eilífa minning hans…), Laura Dern og Jeff Goldblum og hvað þá að Pratt og Dallas Howard, ná ekki að fanga athygli áhorfandans í þessu þunna og leiðinlega handriti, og bardagar á milli risaeðlanna sjálfra eru innantómir og óspennandi.
6. Jurassic Park III (2001)

Þetta sæti var eitt það erfiðasta. Ég átti í vandræðum með að velja hvor væri verri myndin, þessi eða sú sem lenti í fimmta sætinu. Þessi mynd virkar á blaði og hugmyndin er ekki slæm. Það er framkvæmdin og handritið sem klikkar hér. Á engum tímapunkti upplifði ég spennu eða að persónur myndarinnar væru í trúverðugum lífsháska. Mig langaði helst að slökkva og finna mér eitthvað annað að gera.
5. Jurassic World: Fallen Kingdom (2018)

Ef þessi mynd er ekki með lélegustu hugmyndina um hvernig risaeðlur myndu vera notaðar af mannfólki þá skal ég éta hattinn minn. Hverjum datt í hug að vopnvæðing á risaeðlum væri það sem væri rökréttasta leiðin til að fara með þessa mynd? (Colin Trevorrow og Derreck Connolly) Þetta eru lifandi dýr, ekki snjöll flugskeyti. En mikið djöfull er Chris Pratt svona plat sjarmerandi. Undirrituðum hefur yfirleitt þótt hann skemmtilegur sem Starlord, en guð minn almáttugur hvað hann er bara alltaf sú persóna.
4. Jurassic World (2015)

Mjúkar endurræsingar kvikmyndaheima eru nokkrar á árinu sem þessi mynd kom út. Framhöld sem eru þó á einhvern hátt að segja sömu sögu aftur án þess að byrja heiminn upp á nýtt. Góð dæmi um þetta eru Star Wars: Episode VII – The Force Awakens (2015) og Creed (2015). Þessi mynd passar algerlega í þennan flokk. Söguþráður myndarinnar er skref fyrir skref næstum eins og Jurassic Park án þess að raunverulega bæta einhverju við. Myndin líður fyrir að fara öruggu leiðina til þess að styggja ekki aðdáendur. Meira að segja hundsar hún The Lost World og Jurassic Park III, eins og atburðir þeirra hafi ekki gerst. Jurassic World er ekki Slæm. Hún er bara óþarfi.
3. The Lost World: Jurassic Park (1997)

Eins mikill sjarmör og Jeff Goldblum getur verið, þá tekst honum ekki að blása sama lífi í þessa mynd og upprunnanlega myndin hafði. Hann er lífæð myndarinnar og hans atriði ná að mikklu leiti að halda sömu tilfinningum og Jurassic Park gerði allann tímann. Rest myndarinnar virðist halda að það sé nóg að það standi ‘Jurassic Park’ í titlinum. Aðrar Persónur myndarinnar ná ekki sömu þrívídd og CGI risaeðlur myndarinnar, allt of flatar og teiknimyndarlegar.
2. Jurassic World: Rebirth (2025)

Þetta er sennilega heitasta skoðun mín á þessum lista. Að mínu mati kom þessi mynd, sá og sigraði allar fyrri myndirnar sem ég hef talað um á þessum lista. Hún er ekki flókin og handritið er ekki svakalega djúpt. Þetta er bara einfalt sendiferðarplott með risaeðlum. Það er lítið sem ekkert verið að flækja söguþráðinn með gömlum persónum eða DNA splæsingum við mannfólk eins og aðrar myndir seríunnar gera. Bara einföld ævintýramynd um risaeðlur og fólk.
1. Jurassic Park (1993)

Þarf eitthvað meira að segja? Þessa mynd er alltaf hægt að setja í tækið og líma áhorfandann við skjáinn. Fullkomin blanda af ævintýrum, vísindaskáldskap og töfrum kvikmyndanna. Þessi mynd er frábær inngangspunktur inn í heim kvikmynda og margir sem hafa dáleiðst af því spennuþrungna ferðalagi sem þessi mynd er. Hún gnæfir yfir hinar myndirnar á þessum lista eins og Tyrannosaurus Rex yfir Jeep Wrangler í forarpytti.



Leave a Reply