Hvernig ætli það sé að vera maki Pearl? Hvaða bíóskrímsli væri ömurlegast að þurfa að búa með sem nágranna? Hvaða franchise-framlengingar mega endanlega deyja út?
Frikki fastagestur er sestur með okkur til að svara og viðra þessar og miklu fleiri snarsteiktar pælingar. Sumar hverjar spurningarnar eru innsendar og endurnýttar, en þó skal einu lofa; þessar eru hressar. Sérstaklega þá í ljósi þess að inn í þetta blandast alls konar fjölbreytni í svörum og svölum útúrdúrum.
Sjáum hvernig Frikka gengur.
Beint í ruglið.



Leave a Reply