Trúlega einhver virtasti og þekktasti ‘græjukarlinn’ í Hollywood. James Cameron ætti að vera löngu orðinn brennimerktur inn í nostalgíuheilabúið hjá allmörgum bíófíklum á einn hátt eða annan.
Upp á síðkastið (og í senn um ókomin ár) hefur hann aðallega verið búsettur lengst úti í geimi á Pandóru með Avatar-syrpunni sinni, en þegar um ræðir náungann sem færði okkur The Terminator, Aliens, The Abyss og Titanic – svo dæmi séu nefnd – er kannski þess virði að kafa aðeins dýpra ofan í feril köfunarmeistarans.
Við Kjartan erum hér sestir ásamt Fannari Traustasyni (hjá brellufyrirtækinu DNEG) til að bera saman ólíku bækurnar um hvað gerir framúrskarandi ræmu í nafni Camerons.
Nú er það blátt!



Leave a Reply