Tag: Steven Spielberg
-
Metnaðurinn er óumdeilanlegur og ástríðan skín öll í gegnum þetta blendna ferðalag. Myndin sveiflast í allar áttir með alvarlega farsann.
-
Mynd sem þarf reglulega að upplifa aftur í kvkmyndahúsum. Hún er fokkin’ þrítug og eldist eins og glæstur Goldblum.
-
Í versta falli höfum við hér Spielberg í meðalgóðum gír, í besta hið prýðilegasta poppkornsbíó sem ætti að brúa eitt eða tvö kynslóðabil á meðan því stendur.
-
Allt við þessa mynd er eins og það sé tínt beint af hillu, þ.e.a.s. hillunni sem aðeins voldugustu leikstjórar hafa aðgang að og nota þegar Óskarsbeita er í sigtinu.
-
Viðbjóðslega væmin og melódramatísk, en samt sem áður hjartnæm og grípandi.
-
Tinnaaðdáendur fá nákvæmlega það sem þeir vilja – nema þeir séu, af einhverjum ástæðum, á móti óaðfinnanlegu grafíkinni.





