Drama
-
Hún er fullorðinsleg, skörp og segir sannleikann í bíómyndalegum búningi.
-
Myndin er sem betur fer laus við predikun, en það að hún neiti að taka afstöðu án þess að víkka sjóndeildarhringinn vinnur meira gegn henni frekar en með henni.
-
Allt við þessa mynd er eins og það sé tínt beint af hillu, þ.e.a.s. hillunni sem aðeins voldugustu leikstjórar hafa aðgang að og nota þegar Óskarsbeita er í sigtinu.
-
Á marga vegu er The Master ein sú mikilvægasta og hugrakkasta sem PTA hefur gert á ferlinum, en líka óaðgengilegasta.
-
Þessir vesalingar sveiflast ógurlega til en heildarupplifunin er ekki áhrifalaus.
-
Temmilega grípandi þjáning, gerð til að græta pöpulinn.
-
Þegar öllu er á botninn hvolft gengur Revolutionary Road út á það að að sannfæra áhorfendur sína um það að lifa lífinu til þess ítrasta í stað þess að velta sér upp úr ofhugsunum.
-
Myndin fékk mig til að hlæja oftar en ég bjóst upphaflega við og greip þéttar utan um sálina en ég þorði að ímynda mér fyrir fram.
-
Þá er það búið. Þetta var… ferðalag…
-
Skemmtileg, nútímaleg fantasía sem segir sannleikann beint út án þess að berja hann ofan í mann.
-
Það er broddur í þessari bílferð og aðalmönnunum, en áfangastaðurinn er heldur dauður.
-
Hún er þung, vönduð og metnaðarfull, en það vantar samt pínulítið upp á til að gera hana að skylduáhorfi.
-
Það jákvæðasta sem myndin gerði var að minna mig á hversu ótrúlega góður leikari Brian Cox er.
-
Grjótharður stemmari.
-
Án Ólafs væri engin mynd og ef innihaldið hefði jafnast á við það sem hann leggur á sig fyrir hlutverkið, þá væri myndin álíka meiriháttar og frammistaðan.
-
Átakanlegt drama sem heldur manni gapandi og í heljargreipum.
-
Áhrifarík að vissu leyti en allan tímann leið mér eins og leikstjórinn væri að pína út grátur frekar en að leyfa dramanu að þróast eðlilega og mannlega.
-
Mannleg og frussufyndin. Gott meðal í sálina.
-
Superman Returns er margt. Ferlega margt, en hún er alls ekki misheppnuð. Þvert á móti frekar öflug þegar á líður.
-
Hressandi og sultuslakt innlit til hóps í forvitnilegri starfsgrein. Það vantar ákveðinn brodd, en myndin líður hjá á þægilegum hraða.
-
Fyrirtaks Batman-mynd fyrir fullorðna en fyrst og fremst brilliant glæpamynd sem heldur mögnuðu flugi í tvo og hálfan tíma.
-
Þessi mynd er eins og púsluspil sem endalaust gefur upp nýja mynd í hvert skipti sem þú raðar því upp aftur.





























































































































































































































