Category: ‘Biopic’/Sannsögulegt
-
Útkoman er nær því að vera suð í stíl við froðu frá Hallmark frekar en minnisstætt stuð sem hefur eitthvað að segja um minnisstæðan mann.
-
Ferlega áhugaverð og fantagóð ræma um nokkuð umræðuverða og ferlega fanta.
-
Mikið óskaplega er alltaf fúlt þegar ómerkilegar og froðukenndar bíómyndir eru gerðar um stórmerkilegt og forvitnilegt fólk.
-
Meiri tennur, tilraunasemi og klassi er kominn í leikstjórann aftur og skilar það af sér tignarlegri samsuðu af klínískum dramatrylli og tens karakterstúdíu.
-
Aaron Sorkin, hinn virti og sífellt hvassi bandaríski handritshöfundur, er algjörlega engum líkur þegar kemur að því að rífa kjaft með skrifum sínum, að minnsta kosti ekki síðan David nokkur Mamet var upp á sitt besta.
-
Ólíklegt er að finnist þarna úti betri og hjartnæmari „auglýsing“ fyrir Google Maps.
-
Lúmskt kröftug mynd sem skapar samræður og tilgerðarlausi taumurinn gerir hana að mögnuðu stykki sem hamrar á mikilvægi rannsóknarblaðamennsku.
-
Myndinni gengur ekkert glimrandi vel að selja sig sem sanna sögu, en grunnurinn er nægilega athyglisverður sem og persónan í sviðsljósinu.
-
Kraftur og kjaftur í meiriháttar nálgun að ‘biopic’ sögu.
-
Myndin sjálf stendur kannski ekki undir heitinu sínu en Hardy gerir það svo sannarlega þar sem ég hef sjaldan séð einn mann slást eins skemmtilega við sjálfan sig.
-
Einbeitta og lúmskt grípandi túlkun Depps á Bulger gæti hugsanlega haft jákvæð áhrif á ferilinn hans héðan í frá, en hún nær ekki að bjarga myndinni.
-
Nokkuð góð en heldur áhættulaus og ‘snyrtileg’ miðað við umfjöllunarefni sem setur hvössustu rappara síns tíma undir smásjánna.
-
Hún kemur skilaboðunum sterkt og ánægjulega til skila en mátti skipta betur út rjómalagaðri einlægni fyrir meira brútal hreinskilni.
-
Ef nafnið hans Clints fylgdi ekki þessari mynd hefði hún trúlega aldrei fengið allar þessar tilnefningar.
-
Jolie virðist hafa vaðið beint í Óskarsbeitu eftir pöntun og vonað að öll hráefnin skili sér.
-
Ekki er neinn skortur á mögnuðum senum sem leggja áherslu á smáatriði leikara, tilfinninga eða hugarástands í óslitnum tökum.
-
Þó myndin sé ekki endilega slípuð frá öllum hornum en leikurinn er gallalaus og stundum er það meira en nóg þegar efnið er svona sterkt og umfjöllunarefnið athyglisvert.
-
Þegar allt fer í fokk og myndin breytist í mini-Black Hawk Down, bara betri. Svo tekur restin við…
-
Betri en flestar glæpamyndir síðustu áraraða og ein best heppnaða óbeina gamanmynd sem má finna þarna úti.
-
The Fifth Estate er hönnuð með formúlu til að ná til þeirra sem eru mest áhrifagjarnir.
-
Aldrei mun ég taka það frá Captain Phillips hvað umfjöllunarefnið er merkilegt.
-
Ómótstæðilegt ferðalag. Ljúfsárt og eftirminnilegt.
-
Ég bað ekki um fullkomna mynd en fullnægjandi og lífspeppandi hasardrama skal ég algjörlega sætta mig við.























