Hedwig and the Angry Inch er költsöngleikur úr smiðju John Cameron Mitchell og Stephen Trask. Þar er sjálfsmynd, kyngervi og hinseginleiki könnuð í gegnum ærslafull og angurvær rokklög sem oft fylgja teiknaðar senur.
Myndin er byggð á Off-Broadway söngleik og var gerð af sömu mönnum og skrifuðu söngleikinn. John Cameron Mitchell sem leikur Hedwig leikstýrði henni meira að segja!
Hún græddi lítið í bíó en þegar á vídjóleigurnar var komið fann hún sinn aðdáendahóp eins og gengur og gerist með költmyndir. Ásamt því hefur söngleikurinn notið meiri vinsælda í gegnum tíðina, sérstaklega eftir að Neil Patrick Harris söng hlutverk Hedwig á Broadway 2014.
Íris fær Hauk Heiðar Steingrímsson til sín í stúdíóið enn á ný en í þetta skiptið dregur hann eiginmann sinn og rokksöngleikjaáhugamanninn Jón Baldur Bogason með sér. Þar kryfja þau atburðarrás myndarinnar ásamt lögunum. Þar kviknuðu upp margar spurningar:
Hvaða lag var best? Hvað er kyngervi Hedwig? Er Yitzhak karl eða kona og hvernig á maður að bera fram þetta nafn? Hver er í rétti, Hedwig eða Tommy Gnosis?
Taktu hárkolluna úr kassanum því nú ætla þau að leiða þig í gegnum þennan grimma, litla bæ.






































































































































































































