Allar fimm myndir syrpunnar eru ræddar í þaula. Stuttmyndirnar líka.

Margir hafa mögulega gleymt því en heimurinn fór nánast á hliðina þegar fyrsta Leikfangasaga Pixar-stúdíósins var gefin út. Þetta var fyrsta tölvugerða teiknimyndin í fullri lengd þar sem sköpunarteymið lagði það að markmiði að gera hálfgerða ‘anti-Disney mynd’.

Sem betur fer stóðu gæðin undir vinsældunum, því seinna meir urðu Toy Story myndirnar enn vinsælli og að margra mati betri eftir því sem á leið.

Til að ræða hæðir og umdeildu lægðir Toy Story seríunnar fengum við Kjartan til okkar hina massakláru og ávallt skemmtilegu Siggu Clausen til að róta aðeins með okkur í dótakassanum. Allar fimm myndir syrpunnar eru ræddar (að ógleymdum stuttmyndunum) og sömuleiðis ólíkar tengingar hvers og eins í stúdíóinu við ævintýri Vidda, Bósa, Dísu og félaga.

Þetta þýðir bara eitt; það er kominn leiktími!

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading