Hér er mynd sem fúnkerar eins og hið fínasta persónuleikapróf í tengslum við það í hvernig ljósi þú metur aðalpersónuna.

Gættu hvers þú óskar þér. Í tilfelli litlu ‘stórmyndarinnar’ Obsession hefði leikstjórinn og YouTuber’inn Curry Barker ekki mögulega getað óskað sér betri útkomu hvað aðsóknina varðar.

Þessi mynd hefur verið að vekja gríðarlega athygli um allan heim og árangurinn er þeim mun magnaðri í ljósi þess að myndin er sögð hafa kostað undir milljón dollara. Þar af leiðandi má tvímælalaust gera ráð fyrir að Barker sé kvikmyndagerðarmaður sem kominn er til að vera og ekki síður leikkonan Inde Navarette, sem er hreint út sagt meiriháttar í hlutverki sínu.

Við Íris, Kjartan og Atli Freyr kryfjum atburðarás þessarar stórvinsælu indí-myndar eftir bestu getu, þar sem ólíkur bakgrunnur hvers og eins við mækinn spilar einhverja rullu í túlkunum.

Obsession er kannski ekkert sérlega djúp bíómynd en það breytir því ekki að um margt er að ræða í tengslum við skilaboð hennar, persónusköpun og þemu.

Er hægt að óska eftir meiru?

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading