Predator myndirnar eru orðnar eins margar og þær eru ólíkar í gæðum, þó oft vilji margur einstaklingurinn meina að flestar þeirra séu ekkert sérstakar…

Predator myndirnar eru orðnar eins margar og þær eru ólíkar í gæðum, þó oft vilji margur einstaklingurinn meina að flestar þeirra séu ekkert sérstakar.

Hins vegar er víða viðurkennt að fyrrum bíórýnirinn Dan Trachtenberg hafi fundið hina langþráðu orku- og gæðasprautu sem serían þurfti eftir að hann fékk taumana á henni með Prey og Killer of Killers. En þá er Badlands næsta skrefið í þeirri vegferð hjá leikstjóranum sem siglir trúlega í eitthvað enn metnaðarfyllra.

Við Kjartan, Atli Freyr og Birgir Snær skoðum hvort Badlands sé annað kærkomna eintakið í myndabálkinn eða enn eitt feilsporið – og hvort ræman komist hjá svokallaða Disney-stimplinum.

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading