Búast má við djúpu kafi og ómótstæðilegum nördalegheitum.

Splunkuný endurræsing á Ofurmenninu hefur nú litið dagsins ljós og í senn glænýr bíóheimur frá DC stúdíóinu. Tímasetningin á þessu re-brandi kemur á besta tíma af því að dæma hvað MCU-heimurinn hefur verið í mikilli lægð, að margra mati. En hvað er það sem hefur gert Súpermann að einni ef ekki allra þekktustu ofurhetju dægurmenningar fyrr eða síðar?

Gísli Einarsson, eigandi Nexus (og mörgum kunnugur sem ‘Gísli í Nexus’) er sestur í stúdíóið sem einlægur gestur Bíófíkla að sinni. Saman ræðum við allir söguna af Superman í gegnum poppkúltúrinn, myndasöguræturnar, bíómenningu víða og – vitaskuld – útkomuna á Superman frá James Gunn. Hvort þetta fljúgi, falli eða lendi einhvers staðar í miðjunni.

Búast má við djúpu kafi og ómótstæðilegum nördalegheitum.

Flokkar:

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading