Lífið finnur alltaf leið þegar risaeðlurnar moka inn peningum.

Myndlistamaðurinn Arnar Steinn Pálsson, gestur Bíófíkla að sinni, hefur lengi vel verið á þeirri skoðun að Jurassic Park sé ein besta kvikmynd allra tíma. Þessu virðist Kjartan vera sammála, en þegar Júragarðsmyndirnar eru orðnar sjö talsins – með tveimur endurræsingum – hefur ansi mikið runnið til sjávar. Og nauðsynlegt er að meta stöðu og líf þessa myndabálks.

Leikstjórinn Gareth Edwards gerir tilraun til þess að djúsa nýju lífi í myndaseríuna sem er umdeilanlega komin í eins konar útrýmingarhættu. En hefur Edwards loksins skilað af sér hágæða Jurassic-framhaldsmyndina sem margir hverjir hafa beðið í áraraðir eftir? Eða kemur bara enn ein ástæðan til þess að setja upprunalegu myndina á hærri stall en nokkru sinni fyrr?

Arnar Steinn, Kjartan og undirritaður horfum yfir Jurassic-myndirnar og enda á að setja Rebirth allverulega undir smjásjánna.

Sjáum hvort lífið hafi fundið leið. Enn og aftur.

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading