Atvinnunördið Heimir Bjarnason hefur verið að gera frábæra hluti í íslenskum kvikmyndabransanum og gegnir ófáum rullum í þeim iðnaði. Fram að þessu hefur hann verið framleiðandi, handritshöfundur, tökumaður, leikstjóri auk þess að vera einn færasti ef ekki virkasti klippari landsins.
Árið 2022 gaf hann út kvikmyndina Þrot, sína fyrstu (af fleirum, vonandi) í fullri lengd en leiðin að þeim draumi hófst fyrst og fremst með brennandi ástríðu fyrir kvikmyndaforminu og fjölbreytileika þess.
Við Kjartan tókum á móti Heimi þar sem hann leiðir hlustandann í gegnum tíu kvikmyndir sem skipta honum gífurlegu máli og hvers vegna.
Áheyrnin er sögu fríkaðri.



Leave a Reply