Category: Hasarmynd
-
Heiladauð þeysireið af rugli. Betri en hinar framhaldsmyndirnar samt.
-
Hún er drekkhlaðin hasar og skemmtilegu samspili á milli ólíkra leikara.
-
Þetta þarf ekki að vera gott, bara stuð. En eitthvað týndist fjörið í framleiðslunni.
-
Tomb Raider fellur í rauninni í þá gryfju að taka sig alltof alvarlega, sem veldur því að ýktari þættirnir í handritinu verða hallærislegri fyrir vikið.
-
Neistinn er horfinn en ruglið í fjörinu vantar ekki.
-
Eðaldæmi um sóað tækifæri miðað við möguleika.
-
Alltaf finnur Bay nýjar leiðir til að toppa sig í heilaleysi…
-
Baby Driver ristir kannski ekki þematískt djúpt en það er með ólíkindum hvað stílbrögð og frásögn Wrights ná að pakka miklum upplýsingum í myndmálið.
-
Bestu augnablikin í Alien: Covenant eru samt ekki skrímslasenurnar, heldur þessar litlu, hljóðlátu þar sem Fassbender veltir lífinu og tilverunni fyrir sér.
-
Ef þetta snýst allt saman um að sjá bifreiðar gefa í, skoppa og eyðileggja, þá hefur ekkert verið til sparað á því sviði.
-
Útkoman tekur ekki bara fyrri Wolverine-myndirnar léttilega í nefið heldur er þetta albesta myndin í stærri seríunni sem hún tilheyrir.
-
xXx: Return of Xander Cage ætti að vera einnota, hraðskreitt og heimskulegt fjör en skransar í leit sinni að kúlinu og skilur bara eftir ljót bremsuför.
-
Assassin’s Creed gæti vel verið alvarlegasta kvikmynd sem hefur nokkurn tímann verið gerð um leit að einu epli.
-
Ég legg til að við færum frekar Reacher yfir í sjónvarpið, undir annan taum og með öðrum leikara, náttúrulega.
-
Einföld en ágætlega unnin afþreying sem heldur góði flugi með uppfærslum sínum.
-
Vantar ekki að myndin sé stílísk, hasarkeyrð og (sum staðar) með góða leikara að… leika sér. Það vantar bara allt annað.
-
Hvíl í friði, heilasellur.
-
Ekki eins þrumugóð og Winter Soldier en gerir samt margt af því rétt við sinn þungt pakkaða efnivið.
-
Þetta eru margir boltar á lofti en framvindan og atburðarásin er svo einföld að það gengur ágætlega.
-
Flott stílæfing. Einnota gaman. Samt gaman.
-
Maukpökkuð og kraftlaus ofkeyrsla.
-
Loforðið sem hófst með Casino Royale hefur farið upp og niður. Eftir hina geggjuðu Skyfall sígur þetta aftur niður.
-
Rogue Nation beint í annað sætið. Hún tapar aldrei afþreyingargildi sínu né tökum á púlsinum. Vel skrifuð og skemmtileg. Annað þarf maður ekki.























