Um hlaðvarpið

Örstutt um þetta elskulega, nördalega hlaðvarp okkar; Þetta er sumsé glaðvarp um algjöra bíódellu, þar sem alls konar mismunandi áherslur eru teknar fyrir hverju sinni, vonandi á bæði skemmtilegan og fróðlegan máta. Við reynum að halda góðri róteringu á fjörugum fastagestum og nýjum röddum til að lífga upp á stemninguna. Þættirnir eru (oftast) teknir upp í Podcaststöðinni á Nýbýlavegi.

NÝJASTA NÝTT

Something went wrong. Please refresh the page and/or try again.


Hlaðvarpið skiptist í mismunandi form og fasta liði. Þeir eru eftirfarandi:

Umfjöllun um staka mynd:
Ný eða gömul. Ræman krufin í drasl.

Tvennur og ‘Versus’ þættir: Tvær myndir,
yfirleitt svipaðar eða úr sömu seríu.
Ræddar í samanburðartilgangi.

Topp 5: Rætt um ákveðinn leikstjóra
og raðað upp í fimm bestu myndirnar frá viðkomandi.

Topp 10: Persónulegur ‘uppáhalds’ listi hjá gefnum gesti.

Súrt og svarað: Það eru engin rétt eða röng svör,
einungis flippaðar nördaspurningar til að efla bíóheila hvers og eins.

Spurt og spilað: Spurningaþáttur þar sem eru rétt svör og röng.
Mismunandi þema hverju sinni.

Grease (1978) & Grease 2 (1982) 
Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina.
Deadpool (2016-2024)
Spaugilega og kjaftfora Marvel-serían sem byrjaði með slæmum brandara, grunsamlegum leka og …

Grease (1978) & Grease 2 (1982) 
Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina.
The Warriors (1979)
Komið nú út að leika og verið öll með í eltingarleiknum því …

Súrt og svarað ofl.

Súrt og svarað: Best lyktandi bíómyndin
Hver væri besta myndin til að endurvekja Smell-O-Vision?
Spurt og spilað: Stóra MCU prófið
Haldið ykkur fast, hér eru það Dagur Lár vs. Kjartan…

Topp 5: John Waters
Kómískur konungur viðbjóðsins, gjörið svo vel!
Topp 5: Coen-bræður
hvað einkennir frábæra ‘Coen-bræðra mynd’?

Kjartan Rúnars, Tommi Valgeirs og Atli Freyr.

Upplýsingamolar
um okkur Bíófíkla

Undirritaður, Tómas Valgeirsson (en alltaf kallaður Tommi), er af ítölskum ættum og með áratuga víðtæka reynslu af fjölmiðlastörfum, hlaðvarpsgerð, myndlist, grafík, klippivinnu og textaþýðingum, auk þess sem hann hefur marga fjöruna sopið (og gert fjölmarga öskureiða…) sem kvikmyndagagnrýnandi. Hann hefur jafnframt verið einn umsjónarmanna vefsins Kvikmyndir.is og starfað hjá fjölmiðlunum Vísi, RÚV, Birtíngi, MBL og DV. Hann hefur einnig staðið fyrir kvikmyndasýningum á höfuðborgarsvæðinu í tæplega tuttugu ár, gegnt hlutverki handritslæknis (e. script doctor) ófáu skiptin og skrifað/framleitt ‘niche’ þætti á borð við Punktinn.


Kjartan Rúnarsson er uppalinn í Hveragerði og Ölfusi. Hann býr á því svæði ásamt konu og börnum. Ástríða hans á kvikmyndum kviknaði seint miðað við flesta aðra en hefur vaxið nokkuð hratt á seinustu árum. Sumarið 2023 bauðst Kjartani að ganga til liðs við hlaðvarpið Camera rúllar og var hann þar með þátt sem hét Best Boy fram til 2024. Það er fátt sem fangar athygli Kjartan jafn mikið og góð kvikmynd en Jurassic Park, Star Wars og vísindaskáldskapur af öllu tagi eru hlutir sem hann stenst ekki. Ekki skemmir að bæta við poppi, kóki og kanski gulum poka af M&M. Hryllingsmyndir eru hins vegar ekki hans ær og kýr en hver veit nema að það hafi breyst síðan Tómas og aðrir bíófíklar fóru að skóla hann til.


Atli Freyr Bjarnason er líklega landsins stærsti aðdáandi Spaceballs, The Thing og Evil Dead myndanna. Þekking hans á hryllingsmyndum, tölvuleikjum, Warhammer, Gundam, anime, Bruce Campbell og ýmis konar flokkamyndum er gríðarleg, enda hefur hún verið ómetanlegt fróðleiksfóður reglulega í hlaðvarpinu. Hann er einnig virkur þátttakandi í hálfmaraþonum og elskar góða göngutúra í sólinni.


Íris Árnadóttir hefur haft ódrepandi áhuga á hrollvekjum síðan hún var barn og horfði á Konung Ljónanna og 101 Dalmatíuhund fyrir adrenalínkikkið. Hún rýnir yfirleitt djúpt í það sem hún sér og elskar að grafa undir yfirborðið hvort sem kvikmyndin býður upp á það eða ekki. Hún er líka ötul talskona alls sem kallast gæti “költ” og “camp” og “smekklausra” mynda sem leyna á sér. Hún hefur starfað í áraraðir við þýðingar skjátexta og teiknimynasagna ásamt því að vera með miðpróf í söngleikjasöng. Hún tekur einnig virkan þátt í áhugamannakvikmyndagerð.


Atli Freyr Atli Sigurjóns Baldvin Z baltasar kormákur Batman Birgir Snær Bragi Þór Hinriksson Captain America Christopher Nolan Danny Boyle Darren Aronofsky DC Denis Villeneuve Friðrik Önfjörð George Miller hresst Hulk Iron Man James Bond James Gunn Jurassic Matt Reeves MCU Michael Bay Mission Impossible Pixar Quentin Tarantino Ridley Scott Robert Rodriguez Sam Raimi Sigga Clausen Snævar Sölvi Spider-Man Star Wars Steven Spielberg Superman Thor tim burton Venom Wachowski X-Men Íris Árna Ísland Íslensk mynd Óli Bjarki