Gott andrúmsloft, sterkir leikarar og geggjuð tónlist. Þetta eru gjarnan einkenni betri myndanna úr filmógrafíunni hjá Michael Mann. Auk þess virðast allflestir karlmenn tengjast kvikmyndinni Heat einhverjum órjúfanlegum böndum, einhverra hluta vegna.
Páll Eyjólfsson er aftur snúinn frá Lúxemborg til að spjalla við okkur en að þessu sinni varð Mann fyrir valinu. Þá stokkum við þrír upp okkar topplista úr sarpi Manns og getur hlustandi dæmt sjálfur um hver við mækinn sé mesti Mann-fræðingurinn á svæðinu. (Að öllum líkindum er það Páll.)
En þá er bara að demba sér í múdið.








































































































































































































