Mögulega var það óhjákvæmilegt, en nú er komið að því að kafa aðeins ofan í þennan stórvinsæla kvikmyndagerðarmann, Óskarsverðlaunahafa og Íslandsvin! Þetta er auðvitað tíma-obsessaða IMAX-undrið Christopher Nolan, ásamt sterkum umræðum um hvort hann sé ofmetinn, snillingur, hvort tveggja eða hvorugt.
Gestur að sinni er Páll Eyjólfsson starfar í fjármálageiranum en þó er hann einnig virkur bíófíkill, með sérstakt dálæti á téðum kvikmyndagerðarmanni. Palli valdi það verkefni að ‘ranka’ Nolan-sarpinn og þá var undir okkur Kjartani komið að mæta með topplistana brýnda.
Stillum saman úrin, skellum okkur í jakkafötin, berum bækurnar saman og setjum Piaff á fóninn. Skoðanir ku vera mismunandi í þessum þætti, en allar formúlur Nolans – styrkleikar sem veikleikar – eru í bullandi fókus hjá þessum bullandi herramönnum.
Jafnframt kann að vera að eitt lykilþema Nolans sé tekið til umræðu; mynstrin um dauðu kærusturnar.








































































































































































































