Í fyrsta þætti kynnumst við leikurunum Báru Lind Þórarinsdóttur og Tómasi Howser.

Hlaðvarpið ÞROTKAST skoðar grannt hin ýmsu brotabrot af Þroti, fyrstu kvikmynd Heimis Bjarnasonar í fullri lengd og indí-verk sem á sér enga baksögu líka. Í þriggja hluta örvarpsseríu er fókusinn stilltur á bak við tjöldin og víðar í tengslum við afrakstur Heimis og hans teymis.

Í fyrsta þætti kynnumst við leikurunum Báru Lind Þórarinsdóttur og Tómasi Howser ögn betur en í kvikmyndinni.  Athugið að ekki þarf að hafa séð kvikmyndina Þrot til að geta notið þessa varps enda áhersla meira lögð á listina, leiðina, leiðindin, léttina og liðið frekar en að raðstúdera innihald myndarinnar í graut.  

Flokkar: , ,

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading