Sunrise on the Reaping og A Ballad of Songbirds and Snakes eru fimmta og sjötta mynd Hunger Games seríunnar. Þær eru svokallaðar endurlitsmyndir (e. prequel) sem fjalla um atburði sem gerast fyrir tíð Katniss og Peeta úr upprunalega þríleiknum (eða fjórleiknum ef þið teljið Mockingjay 1 og 2 sem tvær myndir). Ballad gekk ágætlega í bíóhúsum en Sunrise er að brjóta öll miðasölumet Lionsgate eftir sérstaklega vel heppnaða frumsýningarhelgi.
Sú fyrrnefnda fjallar um aðra fjórðungskvöðina (e. Quarter Quell) þar sem Haymitch Abernathy er valinn til þess að keppa í Hungurleikum með tvöföldu magni af börnum. Sú síðarnefnda er frá sjónarhorni Snow forseta sem 18 ára skólapilts og afdrifaríku sambandi hans við Lucy Gray, syngjandi stúlkuna frá umdæmi 12.
Íris fær aftur til sín Sunnevu Maríu og þær kryfja myndirnar tvær með tilliti til bókanna, hinna myndanna í seríunni og þeirra eigin ágætis. Því fylgir fjörug umræða sem tekur til víkkunar söguheims, áskorana sem fylgja því að færa grimmilegar bækur yfir á skjáinn fyrir sem víðastan áhorfendahóp, afrekið sem leikaravalsdeildin vann við leikaraval þessara mynda, heilabrot um mögulega aðalpersónu næstu myndar og margt fleira.
Verður þessi þáttur skemmtilegur?
Líkurnar eru ævinlega þess í hag.








































































































































































































