Kanadíski viðskiptafræðingurinn og sjónvarpssnillingurinn Nathan Fielder er enginn amatör þegar kemur að því að halda pókerfeisi og grilla í einstaklingum sem taka þátt í verkefnum hans fyrir framan tökuvélarnar. Fielder er fyrst og fremst frábær í að halda uppi nokkrum grímum í einu og leyfa svolítið glærum einstaklingum á skjánum að stýra narratífunni – eða öfugt.
You Can See Everything mætti hálfpartinn líkja við brenglað útskriftarverkefni þar sem Fielder heldur sér þægilega innan sérsviða sinna og þægindaramma á sama tíma og hann hleypur hömlulaust út fyrir þá. Myndin stendur vissulega fyllilega undir sér sem sjálfstætt verk sem krefst engrar sérstakrar heimavinnu, enda allt lagt býsna snyrtilega fram… En…! Ef áhorfandinn vill fá stærri upplifunarpakka út úr þessu öllu er hann eindregið hvattur til að kíkja fyrst á Hulu-þættina The Dropout þar sem Amanda Seyfried fer algjörlega á kostum*, og jafnvel The Rehearsal eftir Fielder til að fá tilfinningu fyrir því hvernig hugurinn hans virkar. Hér sameinast ólíkir en stórlega forvitnilegir hugar þar sem allir hafa sínar eigin túlkanir og upplifanir á umfjöllunarefninu.
Fielder hefur auðvitað garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You (og síðast The Rehearsal). Í þessari mynd fylgir hann eftir „frumkvöðlinum“ og svikahrappinum Elizabeth Holmes í rúman mánuð áður en hún hefur 11 ára fangelsisvist vegna svika við fjárfesta í Theranos-skandalnum svokallaða. Fyrirtækið sérhæfði sig í meintri byltingarkenndri tækni við blóðprufur þar sem aðeins einn blóðdropi úr fingurgómi sjúklings átti að duga til að greina krabbamein og fleiri sjúkdóma.

Á heimili Holmes kynnumst við betur henni og sambýlismanni hennar, Billy Evans, og fyrr en varir verða Fielder og teymi hans þátttakendur í lífi þeirra. Úr verður nokkurra ára rannsókn á Holmes, prófíl hennar og sjálfsmynd, og því hvað sé hægt að segja að sé raunverulegt þegar viðfangsefnið er meðvitað um að myndavélin fylgist með öllu. Í aðdraganda fangelsisvistarinnar og óhjákvæmilegrar kveðjustundar fara undarlegustu áherslur að stigmagnast og vingjarnlegu grímurnar renna hægt og rólega af – með ljómandi eldfimum árangri. Á einum tímapunkti myndarinnar, circa á þriðja klukkutímanum, fer allt næstum því fjandans til í samtalssenu á milli Fielders, Evans og ónefndrar huldumanneskju (sem er tær senuþjófur þessarar myndar), þar sem klárlega má grípa til samlíkingarinnar um að heyrst gæti í saumnál detta. Það er svo sem úr nægu að taka hvað slíka stemningu varðar.
You Can See Everything er hinn merkilegasti bræðingur af rólegheitarræmu (e. ‘hang-out movie’, eins og það kallast) um hina mannlegu hlið máls sem oft er afskrifuð sem ómannleg og löðrandi í lygasýki, en á sama tíma algjör þeysireið í ringulreið upplýsinganna sem komast til skila. Heildarsvipurinn er með algerum ólíkindum. Þetta er meistaralega grípandi og marglaga æfing í kúnstinni að blörra línurnar á milli frásagnar og raunveruleika, þar sem stjórnsemi og sálfræðileg leikni eru í brennidepli. Þar að auki er þetta ákaflega krassandi innlit yfir höfuð og mjög sérstakt dæmi um tilfelli þar sem kvikmyndagerðarmaðurinn, Fielder í þessu tilfelli, myndar umræðuvert samband við einstaklinginn í sviðsljósi sinnar heimildarmyndar. En hver er að blekkja hvern? Það er lykilspurningin. Að minnsta kosti ein þeirra.
Oft er talað um að það séu þrjár hliðar á öllum málum. Ein rétt, ein röng og ein veraldlega mistúlkuð. Að öllu útlítandi er hér um að ræða kvikmynd sem hefur tekið við miklum stökkbreytingum á meðan ferlinu stóð. Í fyrri helmingi myndarinnar er á ferðinni býsna lágstemmd, intróspektív og íhugul heimildarmynd sem síðan smám saman fer að taka á sig allt aðra stefnu. Sjóndeildarhringurinn víkkar, málefnin dýpka og frásagnirnar verða óáreiðanlegri og súrari, og áhorfandinn – að minnsta kosti undirritaður – þeytist í ógleymanlegan rússíbana af óvissu þar sem sumar vendingar eru hreint og beint hneykslandi á lúmskasta máta. Það er aldrei dauð eða tilgangslaus mínúta á þessu skringilega ferðalagi. Það er sjálfsagt með betri hrósum sem hægt er að gefa þriggja tíma heimildarmynd sem gæti annað hvort verið sannari en skáldskapur, eða stórum hluta kjaftæði – eða geysilega safarík, á tíðum skítfyndin og umfram allt stórkostlega athyglisverð blanda af hvoru tveggja.

Allt sem flokkast undir hæp er yfirleitt hættulegt þegar kemur að væntingastjórn, en þó svo að You Can See Everything sé ekki öllum aðgengileg (og hún mun trúlega minnst gera fyrir einstaklinga sem nenna ekki að hafa fyrir því að lesa á milli línanna), er samt hægt að dást að þessari kvikmynd út í hið óendanlega. Meira að segja ef horft er fram hjá glæsileika yfirborðsins – þar sem má t.d. nefna hversu öflug kameruvinnan er, hversu sterkt múd verður til undir áhrifum tónlistarinnar og hvað samsetning eða klipping í heild sinni er traust – er hægt að taka ýmislegt út úr þessari mynd. Jafnvel þó öll myndin væri einn epískur blekkingarleikur þá stendur samt eftir óvenjulegt dæmi um masterklassa frásögn þar sem fókusað er á hvernig ólíkar hliðar geta skipast, eða hvað ‘sannleikur’ er frá sjónarhorni ólíkra einstaklinga og hver sem tengsl og nálægð þeirra er við kjarnaefnið. Holmes gæti vel verið að spinna allt í einhverri sjálfsblekkingu og sjálfhverfu eða hún gæti verið fullkomlega einlæg þegar hún lýsir sinni frásögn sem ‘sínum sannleika,’ sem í augum annarra gefur upp þá mynd eins og hún gangi alls ekki heil til skógar. Kannski verða áhorfendur ekkert fróðari um svör að myndinni lokinni frekar en Fielder. Kannski sjáum við eitthvað sem hann sjálfur sér ekki einu sinni sökum þess að vera orðinn of hlutdrægur. Eða hvað?
Hvernig og hvort áhorfandinn kjósi eða komist ekki hjá því að trúa Holmes eða trúa henni ekki er undir hverjum komið, og gerir þennan afrakstur og heildina almennt þeim mun umræðuverðari í samhengi allra þeirra sönnunargagna sem liggja fyrir. Þá er jafnframt ljóst að áhorfandinn geti líka lagt í þessa heimildarmynd með eina taktfasta skoðun á málinu en skilið síðan við áhorfið með allt annað hugarfar, eða að minnsta kosti óvæntari ef ekki meira komplex skilning á skandalnum sem kom öllu þessu umfjöllunarefni af stað. Auðvitað er fátt sem skákar þann gígantiska farsa sem einkenndi upprisu og fall Holmes í raunheiminum, en Fielder og hans teymi færa ágætis rök fyrir því að töluverðu sé við sögu hennar að bæta. Þessi kvikmynd markar einnig fyrsta skiptið þar sem Holmes hefur tjáð sig opinberlega við fjölmiðil eða einstakling síðan 2016, enda hefur hún síðan þá verið þungamiðja endalausra skopstælinga, athlægis og niðurrifs, og ekki óskiljanlega. Myndin varpar ekki aðeins spegli upp að Holmes og hennar fjölskylduneti, heldur dregur áhorfandann meira eða minna í kexruglaðan speglasal þar sem sífellt vakna tilfinningar um efasemdir, geðheilbrigði, valdamiðlun, ímyndarstjórnun, umræður um sjálfið og listræna frelsið sem fylgir svona vettvangi, hneykslismáli og almennu umtali fólks. Veltandi þá á því hvert sagan leiðir.

Þegar kemur að heimildarmyndum er almennt góð regla að taka ekki öllu bókstaflega. Yfirleitt á dramatísk framvinda forgang fram yfir hefðbundnar staðreyndir, en í fágætum tilfellum sameinast óneitanlegar staðreyndir og spennuþrungin frásögn. Eftir því sem á líður kemur óvæntur gestur inn í atburðarásina og þá fer allur tilfinningaskalinn á flug. Að vísu verður myndin í síðari helmingi að hálfgerðum gjörningi sem á sér varla sinn líka. Þar að auki þýðir ekkert fyrir áhorfendur að vanmeta það hvað Fielder er fáránlega skarpur með yfirsýninni – og það á líka við þegar hann spilar sig býsna glórulausan. Niðurstaðan kemur út á því sama; þetta er hellað gott sjónvarp! Eða bíó… Eða bara ‘sjónvarpsbíó'(?)…
Velgengni og umtali þessarar myndar ber sömuleiðis dátt að fagna. Eftir að kvikmyndahúsaiðnaðurinn hefur verið talinn í mikilli ‘útrýmingarhættu’ eftir COVID-faraldurinn, þá hefur 2026 náð að dúndra upp lífsmörkum kúltúrsins með vinsældum smærri mynda á borð við Obsession og Backrooms, svo dæmi séu tekin. Það er þó varla hægt að kalla það skýrara merki um að bíóhúsin séu að upplifa góðan blóma þegar almenningur víða um heim er farinn að flykkjast á þriggja tíma heimildarmynd. Það eru reyndar nokkrir útvaldir einstaklingar sem hafa átt stjarnfræðilega gott ár í ár, og tveir á meðal þeirra væru m.a. leikarinn Robert Pattinson – af kannski augljósum ástæðum – og kvikmyndagerðarmaðurinn Lance Oppenheim, annar leikstjóri You Can See Everything. Merkilegt nokk þá sameinuðu þeir tveir grilluðu fagmenn einmitt krafta sína með stórfínu kvikmyndinni Primetime sem kom út í haust, og fyrir leikstjórann hefði það þótt ágætis hápunktur fyrir eitt ár en reyndist í staðinn vera forsmakkið að einhverju stærra og magnaðra.
Þeir Fielder og Oppenheim virðast vera geysilega snjallt dúó saman með þessu verkefni og meira að segja hin einföldustu skot eða atriði í þessari vægast sagt einstöku heimildarmynd búa yfir því afli að segja svo miklu meira við nánari skoðun en ber kannski að geta við fyrstu sýn, eða blasir við alveg bersýnilega. Sumt gæti ekki verið meira æpandi í tengslum við hver er ‘vondi karlinn’ í vissum tilfellum eða í heildina séð, en svo er dýrindis haugur af öðrum litlum upplýsingabrotum sem líkja mætti við eins konar púsluspil. Jafnvel persónuleikapróf.

Þegar allt kemur til alls vitum við sem áhorfendur ekki hvort við höfum orðið vitni að einhverju djúpstæðu eða hvort við höfum verið blekkt – allavega að hluta til. Þar liggur eiginlega snilldin í þessu verki. Það sem er enn fremur dáleiðandi og óneitanlega frábært við You Can See Everything er óvissan, tvíræðnin og hvernig hver og einn áhorfandi getur skilið verkið á sinn hátt.
Hvort sem þú elskar myndina og alla tilheyrandi geggjunina – og óvænta, melankólíska fagurfræði hennar – eða deyrð úr leiðindum yfir henni, þá er erfitt að færa rök fyrir öðru en að þetta sé ein af mest framúrskarandi myndum ársins sem á á hispurslaust skilið þessa athyglishrinu. Í það minnsta er hún með þeim frumlegri, einkennilegri, lúmskari og umræðuverðari. Á fleti heimildarverka er heldur ekki ósennilegt að þetta teljist til þeim frumlegustu sem komið hafa út á síðustu misserum og árum. Þess að auki er myndin gjörsamlega morandi í senum, þróunum og bútum þar sem kjálki áhorfandans er í hættu við það að hrynja í gólfið. Á besta máta.
En hvílíka snilldin, og klárlega mynd sem gaman verður að endurupplifa, klóra sér í kollinum yfir og djúpgreina betur um ókomin ár.
*Og ef þú veist, þá veistu!








































































































































































































