Að horfa á Bollywood-mynd er… svo sannarlega eitthvað annað level af skemmtun. Eða steik.

Indverskar kvikmyndir. Hingað til hafa þær ekki mikið komið til tals (ókei, bara ekki neitt!) í Bíófíklum en hér og nú skal bæta úr því með stæl. Gestur þáttarins, Elín Ingibjörg Eyjólfsdóttir, er fæddur Bollywood-unnandi að eigin sögn og er sest ásamt Kjartani til að skóla hann örlítið í einkennum slíkra mynda og maukstúdera umrædda verkið sem varð fyrir valinu.

Kjartan stóðst þessa áskorun Elínar eins og mikill meistari og er óhætt að segja að HNY sé endemis veisla. En hvers konar veisla er það sem brýnt er að klóra sér í kollinum yfir.

Upp með kuflana og spörum ekki danssporin á meðan við bjóðum Elínu velkomna í stúdíóið.

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading