Við Baldvin skoðum þriðja/ellefta þáttinn í þaula og hvort það sé raunverulega þarna viðeigandi að skála fyrir gömlum tímum.

Óvænt áföll geta breytt tilverunni á örlagastundu og missirinn gagnvart nýlátnum einstaklingi er fljótur að taka sinn toll á nánustu aðstandendur.

Mörk vinnulífs og fjölskyldulífs eru komin að frostmarki og er lítið annað en létt kaos í stöðunni þegar allir þekkjast í litlu bæjarsamfélagi og gegna nokkrum hlutverkum í einu. Má vissulega deila um hvort þetta sé besti tíminn fyrir Davíð til að varpa sannleikssprengju sem gæti haft grafalvarleg áhrif á útkomuna framundan.

Annars eru stöllurnar Ragnheiður (Sólveig Arnars), Auður (Halldóra Geirharðsdóttir) og Hildur (Erla Ruth Harðardóttir) eru formlega sameinaðar á ný til að minnast vinkonu sína heitnu og gamla tíma í senn. Það sem virkar þó í fyrstu sem athöfn til að kveðja gömlu sárin verður hratt og bítandi að nýju upphafi þar sem mögulega er eitthvað enn verra í uppsiglingu en nýliðið dauðsfall sem skekur Glerársanda.

Ekki láta einfaldleikann blekkja, því nóg er til að róta í þegar kemur að þessum þriðja/ellefta þætti. Ekki síst blekkingarleikirnir sem hér ríkja á milli vinafólks og fjölskyldu.

Við Baldvin skoðum þriðja/ellefta þáttinn í þaula og hvort það sé raunverulega þarna viðeigandi að skála fyrir gömlum tímum.

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading