Ojæja, myndin er allavega litrík… Ætli það sé nóg?

Hér er hún; Þriðja tilraunin að því að koma leikinni kvikmyndaseríu af stað eftir þekktu slagsmálaleikjunum frá Capcom. Nú er sett allt í botn hvað ‘90s fílinginn varðar og í rauninni alla þvæluna eins og hún leggur sig. Hefur kannski loksins náðst að gera vel heppnaða Street Fighter mynd?

Grínistinn, fastagesturinn og poppkúltúrs-sérfræðingurinn Bjarni Gautur er mættur aftur til Bíófíkla þar sem saman velta þeir fyrir sér ástand tölvuleikjamynda, skoða alls konar samanburði og klóra sér jafnframt í kollinum yfir því hvers vegna Hollywood þorir sjaldan að fara alla leið með ‘vitleysuna’ þegar kemur að sumu source material’i.

Upp með hárið og hafðu eyrun opin. Þetta verður litríkur slagur…!

Flokkar: ,