Xenu hjálpi okkur.

Ethan Hunt og vinir halda áfram að leita leiðum til að tortíma ógnvægilegri gervigreind í þessum meinta ‘lokakafla’ Mission: Impossible seríunnar, nema að því gefnu að miðasala og hagnaður gefi til kynna að bálkurinn gæti haldið áfram.

En þá er að skoða nýjasta/áttunda eintakið í röð ævintýra þar sem Tom Cruise hættir líkama sínu og lífi til að sýna okkur hinum hvað hann er framúrskarandi í áhættuleik, með fyrirspurnir um hvort og hversu mikill alvöru ‘leikari’ Krúsarinn er, og almennt hversu sterk er þessi skrattans bíósería sem nú hefur spannað heilu 30 árin?

Kjartan er kominn í barneignafrí þegar þetta er tekið upp en þá fékkst naglharður Krús-aðdáandi mættur í hans stað. Birgir Snær Hjaltason er sestur við mækinntil að ræða með mér “Mission: Impossible* – Dead Reckoning Part 2: The Final Reckoning” – og hin sjö missjónin…

Spenntum beltið og fljúgum beint í þetta.

Flokkar: ,

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading