The Other Guys er ekki bíómynd. Hún er rándýrt, sprellfjörugt og hundlangt vinaflipp á milli leikstjórans Adams McKay og þeirra Will Ferrell og Mark Wahlberg. Síðan bætist allt annað bara við og tekur þátt í gríninu með þeim. Það er eins og Ferrell hafi ákveðið að taka persónu sína úr Stranger than Fiction og ákveðið að skella henni í steikta löggugrínmynd ásamt Mark Wahlberg, sem virðist leika karakter sem er óvenjulega líkur þeim sem hann lék í The Departed. McKay hefur hingað til verið gríðarlega mistækur fyrir mér, alveg eins og Ferrell, sem hefur ávallt fylgt honum. Anchorman stóð auðvitað fyrir sínu og hefur reynst vera einhver minnisstæðasta rugl-gamanmynd síðasta áratugs. Síðan ollu McKay og Ferrell talsverðum vonbrigðum með Talladega Nights og Step Brothers. Kannski voru væntingar mínar gagnvart þessari mynd svo lágar vegna þess að mér líkaði ekki við þær myndir, en The Other Guys kom mér furðu mikið á óvart og er bæði einhver freðnasta og fyndnasta mynd sem ég hef séð í marga mánuði.
Hún er reyndar ekki alveg ‘Scott Pilgrim-fyndin’, sem þýðir að hún sé næstfyndnasta mynd sumarsins, ef ekki ársins. Talandi samt um Edgar Wright, þá má alveg færa rök fyrir því að The Others Guys gangi upp sem ameríska svarið við gullmolann Hot Fuzz, að minnsta kosti þegar myndin er upp á sitt besta.

Myndin hefur samt virkilega sérstaka og dásamlega steikta brandara, og eitt eða jafnvel þrjú atriði munu lengi standa úr mínu minni sem eitthvað það besta sem ég hef lengi séð. Eitt þeirra tengist hetjustælum hjá ýktu harðhausunum Samuel L. Jackson og Dwayne Johnsson sem lendir á sprenghlægilegan máta og veltir öllum væntingum um koll. Annað gengur út á epískt súran mónólog hjá Ferrell í samtali við Wahlberg um ágæti túnfiska í baráttu gegn ljónum, en þar var ég nánast dottinn í gólfið af hlátri. Þriðja atriðið snýr að einhverjum hljóðlátasta ágreiningi sem sést hefur nokkurn tímann og endar með brilliant lokalínu. Verst er samt að það er stutt á milli þessara sena og þær eiga sér stað áður en myndin er liðin um hálftíma. Samt er ég alls ekki að segja að afgangurinn sé ófyndinn, hann er bara ekki *eins* fyndinn og óskast væri. Flæði myndarinnar er einnig ferlega hægfara í kringum lokahlutann og er jafnvel hægt að nota orðið langdregið. Það hefði léttilega verið hægt að skera 15-20 mínútur af lengdinni. Þá hefði hún jafnvel hækkað um einkunn hjá mér.
Brandararnir eru oftast ferskir og skemmtilegir. Þeir sem ekki virka eru síðan áberandi þurrir og vandræðalegir. Annars er spuninn hér margfalt betur heppnaðri en í Talladega Nights og Step Brothers. Ferrell hefur ekki verið svona góður í grínmynd síðan einmitt Anchorman. Það er gaman að sjá hann minnka barnastælana í sér og jafnvel bregða sér – meðvitað eða ómeðvitað – í gervi Harolds Crick (úr Fiction), sem er hans langbesta hlutverk. Samspil hans við Wahlberg er geysilega eftirminnilegt (og plís, Wahlberg… vertu oftar í svona myndum, takk!) en senuþjófurinn fyrir allan aurinn er hins vegar Michael Keaton, sem kemur með lúmskt flippaða takta á milli alvarleikans. Bíósumarið 2010 hefur gert massagóða hluti fyrir þennan mann (hann náttúrulega BRILLERAÐI sem Ken í Toy Story 3), og ég vona að hann láti sig ekki aftur hverfa eftir að hafa legið í felum í einhvern áratug. Steve Coogan fær einnig punkta fyrir sína brengluðu spretti og Eva Mendes er merkilega meinfyndin sem sjóðheita eiginkona Ferrells sem aldrei þykir vera meira en fimma eða sexa í hans huga.

En mæli ég með The Other Guys? Ekki spurning! Ég tel samt ekki ólíklegt að haugur fólks muni bara ekki fíla steiktasta grínið og líti á úrið annað slagið. En áður en ég klára verð ég að minnast á það hvað myndin er undarlega vel gerð og metnaðarfull í framleiðslugildi sínu. Hasarinn er þ.a.l. ansi töff og klipping ásamt myndatöku er býsna góð. Kannski ekkert sem snertir Hot Fuzz í þeim efnum, en McKay var að minnsta kosti vakandi alla framleiðsluna, að öllu útlítandi.
Haltu þessu áfram, Ferrell. Þú ert aftur kominn í rétta átt.







































































































































































































