Hversu oft hefur þú séð The Mummy frá 1999? Hvað með Titanic? Léstu nokkuð Little Women frá 2019 fram hjá þér fara? Hefurðu kynnt þér leikstjóraútgáfuna af Midsommar? Eða júmbóútgáfuna af Kill Bill?
Þessar kvikmyndir og fleiri eru allar í miklu uppáhaldi hjá topplistagesti Bíófíkla að sinni, en það er Elín Ósk Jóhannsdóttir sem hefur verið áberandi með innslög sín á TikTok síðustu misseri. Elín er svo sannarlega sjónvarps- og bíófíkill og þar af leiðandi meira en velkomin við gestamækinn í Podcaststöðinni.
Hún leiðir okkur Kjartan í gegnum úttekt sína á titlum sem hafa verið í gríðarlegum metum hjá henni.
Fjölbreytnin er borðliggjandi og við fögnum að sjálfsögðu fjölbreytileikanum. Elín fær orðið, og sviðið.



Leave a Reply