Author: Tómas Valgeirsson
-
Kingdom of Heaven í þessu tiltekna klippi er bæði með bestu myndum leikstjórans og með kraftmeiri stórmyndum síðustu ára.
-
Ekki óáhorfanleg (enda var upprunalega handritið drullugott), heldur meira dauð, bæði í hugmyndaflugi og gríni.
-
Svellköld og eitursvöl súpa af sturluðu fjöri.
-
Sama hvort hún sé góð eða slæm er erfitt að líta á Men in Black 3 sem eitthvað annað en glansandi, metnaðarlausa peningamaskínu.
-
Flottur grunnur er lagður en framvindan er í óreiðu í aftari hluta og hasarinn aðeins of púkalegur.
-
Aðdáendur Cohens þyrftu að vera í mjög slæmu skapi til að hafa ekki gaman af þessari nýjustu sköpun hans.
-
Yfir heildina er The Fighter traust mynd sem rétt missir af því að vera frábær.
-
Það er margt mjög jákvætt við fílinginn; myndræna- og frásagnarstílinn, en almennt mátti alveg hræra betur til í persónusköpun og innihaldi.
-
Dark Shadows er stutt frá því að vera bitlaust miðjumoð en líka hættulega nálægt því að vera mynd sem ég gæti sakleysislega mælt með undir réttum kringumstæðum.
-
Ekki beinlínis góð deitmynd, en fín vekjaraklukka fyrir þá sem hafa verið lengi saman.
-
Það eru töffarastælarnir í Gibson (sem minna oft þægilega mikið á karakterinn hans í Payback) sem ná að halda uppi einhverju fjöri en myndin sem slík er lítið afrek fyrir hann.
-
Án efa skásta ástarsagan hans Robba hingað til.
-
Að horfa á Babies er eins og að horfa á Koyaanisqatsi nema án fallegu tónlistarinnar og með mun einhæfara myndefni í gangi.
-
Viðburðarlítil en helvíti tens ræma.
-
Magnolia er eins og sápuópera ef djarfur kvikmyndaskólanemi fengi að sjá um hana, eða kannski frekar Robert Altman-mynd á margs konar eiturlyfjum.
-
Myndin hefur augljóslega ekkert nema jákvæðan ásetning í að ljósarljósi en þó svo að hún fjalli um hræðilegan hlut, þá þýðir ekki að hún verði bara sjálfkrafa frábær.
-
Ef þú ert einn af þeim sem hafðir ekkert gaman af The Avengers, þá er öruggt að kalla þig fýlupúka á heimsmælikvarða eða segja að þú hafir alfarið gleymt því hvernig það er að vera krakki. En ef þú ert einn af þeim sem fannst myndin skemmtileg, og svo ég tali nú ekki um ef…
-
Ekki alveg sama neglan og fyrri myndin, en hefur næga orku í sínu fjöri engu að síður.
-
Hún skilar sínu mátulega ef maður slekkur á heilanum út lengdina og reynir að hafa húmor fyrir því sem er gert grín að.
-
Ég veit ekki hvort það hafi verið ætlunin eða ekki, en í flestum tilfellum lítur ofbeldið út eins og blanda af teiknimynd og tölvuleik.
-
Ef Resident Evil og hugsanlega Underworld-myndirnar eru með því besta sem þú hefur séð í öllum heiminum þá ætti Priest alveg að geta glatt þig.
-
Absúrd og litríkir búningar ásamt settum eru eins og eiturlyfið hans Tarsems. Hér er öllum boðið að dópa með honum.
-
Grípandi narratífa óskast.























