Hingað til hafa flestir þekkt til Alcocks úr House of the Dragon en við Bíófíklar tökum innkomu og DC-ævintýrum hennar fagnandi.

Nýi DC heimurinn heldur áfram göngu sinni og stækkar hratt með hverju innslagi. Í fyrrasumar fengu áhorfendur að kynnast nýjum Superman, í glæsilega huggulegri túlkun Davids Corenswet. Nú er komið að frænku hans, ofurstúlkunni Köru Zor-El. Milly Alcock skaut reyndar aðeins upp kollinum í kynningarmynd frænda síns en áhorfendur fá loksins að kynnast henni betur í gerólíkri sóló-mynd í leikstjórn Gregs Gillespie (Lars and the Real Girl, I, Tonya, Cruella ofl.). Hingað til hafa flestir þekkt til Alcocks úr House of the Dragon en við Bíófíklar tökum innkomu og DC-ævintýrum hennar fagnandi. Annað en bíógestir, því miður…

Aðsóknartölur myndarinnar um Supergirl hafa ekki verið upp á marga fiska og viðbrögð gagnrýnenda misjöfn en sagan hennar er alls ekki öll og tölurnar stoppa ekki okkur Kjartan og frá því að rýna í myndina og skoða hvernig hún stendur sem sjálfstæð saga og hvernig persónuleiki hetjunnar ganga upp.

Við gestamækinn að sinni er afburðanördið- og enn fremur myndasöguséníið Svanhvít Ada Sif Björnsdóttir til að taka þátt í umfangi umræðunnar, ásamt tilheyrandi og kannski óhjákvæmilegum útúrdúrum í tengslum við SnyderBros, fjölbreytni, menningarstríð, CW þættina um Supergirl og Star Trek (?). Þetta skýrist auðvitað betur í hlustunni.

Flugið verður fróðlegt, furðuleg og margbrotið, eins og umdeilanlega mætti eflaust segja um sjálfa Supergirl.

Flokkar:

Leave a Reply

Discover more from Bíófíklar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading